Össur Skarphéðinsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Mér þykir það ekki boða gott um framtíð þessa ágæta þingmanns sem talaði áðan ef hann er alltaf svona langt á eftir samtíðinni. Það er mála sannast að ég hef mörgum sinnum rætt þetta við þá ágætu menn sem hann nefndi hérna áðan. Staðreyndin er sú að ég og aðrir sem tengjast fiskeldi, aðrir þingmenn sem tengjast fiskeldi hafa gert það sem í þeirra valdi stendur til þess að koma vitinu fyrir mennina. Það hefur ekki tekist. Og þess vegna segi ég að það er kominn tími til að þetta þing sýni vilja sinn í þessum efnum því að ég held að þetta skipti það miklu máli fyrir framtíð greinarinnar. Og eins og ég hef sagt hérna áðan á tímum þegar við búum við ofgnótt raforku, þegar störf eru að tapast, þá ber okkur að gera allt sem hægt er til þess að lyfta undir atvinnugreinar eins og fiskeldi. Þrátt fyrir allt hafa þær í sér vonarneista framtíðarinnar. Og ég segi fyrir mitt leyti að ég er tilbúinn til þess og ég veit að hv. þm. Árni M. Mathiesen, sem er mikill unnandi fiskeldis og kunnáttumaður í því og vafalaust líka mikill unnandi þessara ágætu manna hæstv. iðnrh. og kannski ekki hvað síst bæjarstjórans í Hafnarfirði sem að vísu hefur hann og hans flokk í heljargreipum þar. Ég veit að hann mun hjálpa mér í þessu efni.