Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Áður en lengra er haldið vill forseti upplýsa að andsvör verða ekki leyfð við þessa umræðu þar sem henni þarf að ljúka um eða upp úr kl. 5 vegna þess að hæstv. ráðherra er tímabundinn. Andsvör geta tafið umræðuna og þá er ekki víst að allir hv. þm. sem eru á mælendaskrá komist að með sínar ræður, en nú eru 10 þingmenn á mælendaskrá. Þetta vill forseti láta koma fram strax.