Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Það hefur ekki þurft mikla athyglisgáfu hér í vetur til þess að átta sig á því að þó nokkur fjöldi þingmanna stjórnarliðsins mætir hér við atkvæðagreiðslur og er svo yfirleitt horfinn af vettvangi eftir það. Og það er heldur ekkert leyndarmál að þau rök, sem færð hafa verið fyrir því að þjappa atkvæðagreiðslunum saman á einn tímapunkt þótt umræðum ljúki jafnvel á mismunandi dögum, eru þau að þá er hægt að stýra þingliðinu þannig að það sé hérna á þeim hálftíma eða minna sem þarf til þess að greiða atkvæði. Hins vegar er sjálfsagt að votta það eins og ég gerði hér áðan að það eru auðvitað ýmsir þingmenn stjórnarliðsins sem mæta hér mjög vel og fylgjast með umræðum. En það þarf ekki mikla athyglisgáfu, hv. þm., til þess að átta sig á því hvernig þetta kerfi hefur virkað hér í vetur. Ég er hins vegar ekkert að leggjast gegn því í sjálfu sér ef þingið vill hafa þennan hátt á, en þá verður auðvitað að vera einhver þannig regla á málinu að menn geti treyst því.
Ég ætla ekki að gera þetta að miklu umræðuefni hér. Þetta hefur verið að gerast í vetur og menn hafa séð þetta og fyrir þessu geta verið ýmis rök. Ef hv. þm. Einar K. Guðfinnsson ætlar að mótmæla því að þetta sé svona í reynd, þá er honum auðvitað alveg frjálst að gera það. En ég beini þá því til þingmannsins að nota athyglisgáfuna það sem eftir er af þingi og sjá hvernig þetta virkar í reynd.