Atkvæðagreiðsla um frumvarp um Sementsverksmiðjuna

154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 14:08:59 (6927)


     Tómas Ingi Olrich :
    Virðulegi forseti. Ég held að það sé öllum ljóst að eins og Alþingi Íslendinga háttar störfum sínum, þá fer mikill tími þingmanna í að sitja hér í þingsölum og hlusta á ræður sem oft eru gagnmerkar en oft ekki mjög markvissar. Þessi háttur er hafður á og leiðir óhjákvæmilega til þess að þegar þingmenn þurfa að sinna öðrum þinglegum skyldum sínum en þeim að sitja hér, þá verða þeir að láta sig hafa það að vanrækja það að sitja í þinginu og hlýða á umræður þar eða taka þátt í þeim.
    Ég held hins vegar að það sé svo að þessar staðreyndir, sem snerta starf þingsins, bitni jafnt á öllum þingmönnum og það sé frekar óheppilegt að menn séu með aðdróttanir um það hér að þingmenn eins flokks vanræki þessar skyldur sínar frekar en aðrir. Síðan ég settist á þing hef ég orðið að upplifa það hér í þingsalnum í þrígang að því hafi verið haldið fram að þingmenn stjórnarflokkanna og sérstaklega nýir þingmenn hafi vanrækt skyldur sínar hér í þinginu. Ég tel sjálfur að fyrir því séu engin efni að halda þessu fram og slíkar aðdróttanir séu ástæðulausar og beri að harma og ég legg það til að menn flytji ekki slíkt mál hér lengur heldur sætti sig við að á meðan reglunum um starfsemi þingsins er ekki breytt þá verði menn að búa við það að þingmenn geti ekki alltaf verið hér og hlustað á umræður og að það sé vissulega þannig að þingmenn allra flokka verði að lúta þessum starfsaðferðum þingsins en ekki einungis þingmenn eins flokks.