Atkvæðagreiðsla um frumvarp um Sementsverksmiðjuna

154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 14:11:13 (6928)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti getur fullvissað hv. þm. um að hér hallar ekki á hvort það eru stjórnarliðar eða stjórnarandstæðingar sem eru fleiri á fundum almennt talað. Það er misjafnt. Forseti fylgist með þessu í töflu hér í borði og það er misjafnt hvernig því er háttað. En það hallar ekki á þegar saman er tekið. Hér hefur verið skýrt frá því að þingmenn hafa oft gildar ástæður fyrir því að vera ekki í þingsalnum þó þeir séu staddir í húsinu og það þarf væntanlega ekki að fjölyrða frekar um það.