Pétur Bjarnason (andsvar) :
Virðulegi forseti. Að vísu beindi hæstv. ráðherra ekki orðum til mín þannig að það þarf kannski ekki að svara öðru en því að margt í máli okkar hv. 4. þm. Norðurl. e. fór saman, hún svaraði þannig okkur báðum með ýmsu af því.
Ég held að það sé alveg rétt að það hefur verið haft samband við stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, hæstv. ráðherra talaði alltaf um Samband íslenskra sveitarfélaga, það er fyrst og fremst stjórnin. Það hefur verið gagnrýnt og mér finnst það bera einmitt vott um hversu viðkvæmt þetta mál er að það er ekki nægilegt að tala við stóru heildirnar þegar um svona stórar einingar er að ræða sem þetta mál snýst um. Þetta er viðkvæmt mál og þarf að vinna á þeim grundvelli.
Ég bar eina spurningu fram sem ég vil endurtaka, það var í sambandi við orðalagið ,,ný skipting`` og um hugsanlega sameiningu yfir kjördæmamörk, hvort það væri skýrt hvort um það væri að ræða eða ekki.
Að lokum hefði ég viljað fá svör við því hvort hæstv. ráðherra telur að náist að koma verkefnaskiptingu og fjármögnun sveitarstjórna í viðunandi horf fyrir sameiningu.