Lyfjaverslun ríkisins

155. fundur
Miðvikudaginn 14. apríl 1993, kl. 15:05:46 (7009)

     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er bara örstutt. Í fyrsta lagi þá hefði ég átt að taka það fram að 3. gr. er nákvæmlega eins og greinar af sama meiði í öðrum frv. og hún þýðir ekkert annað, hvorki meira né minna en það sem þar segir og menn hafa deilt um hér og breytir í sjálfu sér engu um þá umræðu sem hér hefur farið fram.
    Í öðru lagi vil ég undirstrika enn og aftur að ætlunin er að stuðla að samkeppni á þessu sviði með sölu fyrirtækisins ef af sölu verður síðar og ég vil taka það fram að einokun er auðvitað ekkert betri í höndum einstaklinga en í höndum ríkisins nema síður sé.
    Í þriðja lagi varðandi dreypilyfin þá finnst mér það vera réttmæt athugasemd sem hér kemur fram. Ég tel hins vegar að það sé engin ástæða til þess að óttast að sú starfsemi falli niður því þetta er efnilegasta nýjabrumið í þessari grein hér á landi. Ég held kannski að þessi starfsemi hafi skilað hvað mestu og sé minnst hættan á því að hún fari forgörðum í höndum sterks einkafyrirtækis sem hugsanlega tæki við af Lyfjaverslun ríkisins verði Lyfjaverslunin hf. seld, sem auðvitað verður ekki nema þetta frv. verði að lögum.