Útboð á ræstingu í framhaldsskólum

155. fundur
Miðvikudaginn 14. apríl 1993, kl. 15:58:53 (7027)

     Guðrún Helgadóttir :
    Frú forseti. Ég heyrði ekki betur en hæstv. ráðherra segði hér áðan að þetta mál hefði verið unnið í góðu samkomulagi við verkalýðsfélögin. Síðan er komið hér með ályktun frá Verkakvennafélaginu Framsókn þar sem þessu er harðlega mótmælt. Má ég spyrja: Hvað þýða svona yfirlýsingar? Var ráðherrann að segja ósatt?