Forseti (Gunnlaugur Stefánsson):
Áður en gengið er til dagskrár vil ég geta þess að fyrirhugað er að atkvæðagreiðslur um 1. og 2. dagskrármál fari fram kl. 1.30, en forseti fyrirhugar að gera hlé upp úr kl. 12.30 sem standi til kl. 1.30 og strax að loknu hléi fari atkvæðagreiðslur fram.
Þá vill forseti einnig geta þess að ekki verða tekin fyrir í dag 5. 7. og 9. mál á dagskrá fundarins.