Breyting á dagskrá

159. fundur
Mánudaginn 19. apríl 1993, kl. 13:45:27 (7153)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill benda á að öll þessi mál, sem hér hafa verið nefnd, eru á dagskrá fundarins og því er gert ráð fyrir að þau komi á dagskrá og til umræðu. Þá vill forseti líka minna á að hún getur breytt röð mála á dagskrá ef því er að skipta. Að þessu sinni hefur verið breytt röð mála og nýrri dagskrá dreift að ósk hæstv. ráðherra sem á mál á dagskránni og gerir forseti engar athugasemdir við það.