Vaxtamál

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 13:48:34 (7238)

     Guðni Ágústsson :
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. svar hans, en það má segja um þessar mundir að eins og Winston Churchill orðaði það: ,,Svarti seppi er sestur í sál hæstv. forsrh. og þjóðarinnar einnig.`` Það skortir viljann. Ríkisstjórnin hefur tekið að sér stærstu sparendur í þessu landi og stríðelur þá á háum vaxtatilboðum í Þjónustumiðstöð ríkisbréfa. Það er ástæðan. Hin ástæðan er sú að aðilar vinnumarkaðarins tala tungum tveim og hafa komist upp með það. Hér er verið að bjóða sparifjáreigendum, sterkríkustu mönnum landsins, vaxtatilboð sem eru eins og útlán bankanna í dag og við sjáum að sparnaðurinn er að hverfa frá bönkunum sem verða að standa undir atvinnulífi landsmanna yfir til ríkissjóðs eins og ég gat um hér í ræðu minni. Þess vegna er brýnt við þessar aðstæður þegar vonleysið grúfir yfir atvinnulífi landsmanna, að hæstv. forsrh. skapi stefnu sem dugir til þess að menn stígi skref til verulegrar vaxtalækkunar.