Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Það er með mig svipað og þann sem talaði á undan mér að ég hef ekki tekið þátt í umræðum um þetta mál. En þetta mál sem hér á að vísa frá er þess eðlis að fólkið í landinu krefst þess að hið sanna komi í ljós. Þess vegna eigum við sem erum hér fulltrúar þjóðarinnar að verða við þeim kröfum. Það snýst ekki um persónur og það snýst ekki bara um fjármál eða fjármálaspillingu, heldur um grundvallaratriði lýðræðisins og það snýst um siðgæði í stjórnmálum. Ég segi nei.