Gunnlaugur Stefánsson
:
Virðulegi forseti. Í tilefni af spurningum hv. þm. Svavars Gestssonar um afstöðu mína til athugunar á fjárhagslegum hliðum þessa máls þá þóttist ég vera mjög skýr í mínu máli er ég gerði grein fyrir atkvæði mínu við atkvæðagreiðsluna. Ég styð það að athugun á fjárhagslegum hliðum og tengslum þessa máls verði á dagskrá fjárln. samkvæmt þingsköpum og þá 26. gr., 31. gr. og 25. gr. Og ég vil ítreka það sem ég hef áður sagt að ég tel það mjög eðlilegt, og að það sé eitt af hlutverkum Alþingis, að eiga aðild að slíkri athugun þegar svo mikið er í húfi eins og raun ber vitni um þessar mundir.