Atvinnuleysistryggingar

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 23:15:05 (7347)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ef listamenn eins og aðrir sjálfstætt starfandi einstaklingar hafa litlar eða engar tekjur borga þeir litla eða enga skatta. Þeir ráða því einfaldlega sjálfir hvort þeir vilja fá aðild að þessu félagslega kerfi með því að tilkynna sig eins og aðrir gera til skattyfirvalda og svo borga þeir ekkert meira en aðrir, þeir borga hlutfallslega alveg það sama og aðrir. Ég spyr: Af hverju skyldu listamenn, þó þeir séu alls góðs maklegir, verða undanþegnir því að taka þátt í greiðslum í sameinginlega sjóði landsmanna eftir efnum og aðstæðum bara af því að þeir eru listamenn?