Frsm. samgn. (Pálmi Jónsson)
:
Virðulegi forseti. Ég tel að það sé misskilningur eða ekki rétt að hér sé um eitthvert atriði að ræða sem vegur þungt eins og hv. 4. þm. Norðurl. v. sagði. Ekkert sem kemur fram í brtt. nefndarinnar raskar því sem hv. þm. lagði til. Ekkert. Hv. þm. lagði til að vélstjóri sé til staðar þegar skoðun fer fram og hann gefi upplýsingar um tækjabúnað og annað slíkt sem undir hann heyrir og það er allt hárrétt sem hv. þm. sagði um það að mikið af öryggistækjum skipsins heyrir einmitt undir vélstjóra. Ekkert í þessu sem raskar því að vélstjóri sé hafður við, eins og hv. þm. orðaði það, til að tryggja sem best að hlutirnir séu í lagi þegar skoðun fer fram. Að sjálfsögðu hlýtur vélstjóri, yfirvélstjóri eða staðgengill hans úr hópi vélstjóra að vera við slíka skoðun. Það segir sig sjálft.
Á hinn bóginn er þetta þannig að við leggjum til að lögin standi að þessu leyti óbreytt frá því sem verið hefur og það sé skipstjórans að sjá til þess af yfirmönnum um borð að lögskipuð skoðun fari fram. Aðrir sem eiga að sjá um það eru eigandi skipsins og útgerðarmaður sem alla jafnan eru í landi og þetta teljum við vera nóg þrátt fyrir að það hefði út af fyrir sig verið að meinalausu að telja upp fleira eða það hefði ekki haft nein alvarleg áhrif að fleiri hefðu verið taldir sem ættu að sjá til þess að lögskipuð skoðun færi fram. Það er óþarfi og þarf ekki að breyta gildandi lögum frá því sem þau eru hvað þetta snertir.
Hitt liggur alveg ljóst fyrir að allt það sem hv. 4. þm. Norðurl. v. sagði um það að undir vélstjóra heyra öryggistæki og mikið af búnaði um borð og um nauðsyn þess að hann sé viðstaddur þegar skoðun fer fram og gefi upplýsingar og beri fram kvartanir og allt það sem til þarf, eru sjálfsagðir hlutir og því er í engu raskað með þeim breytingum sem nefndin hefur lagt til.