Tómas Ingi Olrich :
Virðulegi forseti. Hér er um athyglisverða þáltill. að ræða. Ég vildi aðeins spyrja flm. till. um það hvaða augum hann líti það framtak jarðeigenda í Botnsdal sem mér er kunnugt um en þeir hafa gert eiginlega útivistarsvæði á eigin kostnað og plantað þar trjám og í raun og veru lagt áherslu á það að svæðið væri útivistarsvæði, opið öllum. Þannig að fyrir frumkvæði landeigenda í raun og veru hefur þarna verið stigið skref í þá átt sem að hluta til er verið að ræða um í þessari þáltill. Nú er hins vegar hugsanlegt að vegagerð rekist eitthvað á áform þessara aðila um þetta friðland sem opið er öllum svo ég hefði viljað spyrja hv. þm. Ingibjörgu Pálmadóttur, 1. flm. þessarar þáltill., hvort flm. hennar hafa velt fyrir sér möguleikum á því að tryggja það framfaramál sem þeir eru að flytja með þeim hætti að þeim hagsmunum sem þarna er þegar búið að koma fyrir í Botnsdal væri ekki stefnt í hættu. Ég ber fulla virðingu fyrir þeim vanda sem í þessari þáltill. er að finna og vildi spyrja um þetta atriði.