Eftirlit með skipum

163. fundur
Þriðjudaginn 27. apríl 1993, kl. 13:57:14 (7470)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Þegar atkvæðagreiðsla átti að fara fram um þetta mál í gær höfðu mér borist upplýsingar sem urðu þess valdandi að ég bað um að atkvæðagreiðslu væri frestað. Og eftir að umræðunni um þetta mál lauk þar sem tekið var fyrir nál. samgn. sem ég hafði ekki skrifað undir með neinum fyrirvara heldur samþykkt, þá hafa ákveðnir aðilar beðið um það að fá að ræða við nefndina og það snertir 9. gr. Ég álít að það sé okkar hlutverk að hlusta á þá aðila í þjóðfélaginu sem málið varðar hverju sinni þegar lagasetning er gerð og ég óska því hér með eftir því að hv. samgn. taki málið upp á milli 2. og 3. umr. Ég mun sitja hjá við afgreiðslu á 9. gr. en að öðru leyti greiða málinu öllu atkvæði.