Forseti (Guðrún Helgadóttir)
:
Forseti vill geta þess að umræða sú sem samið hafði verið um að fram færi eftir kl. 16.30 eða upp úr því verður nú að fara fram kl. 17. Einn hv. þm. er á mælendaskrá, hv. 2. þm. Vestf. Forseti vill leyfa sér að spyrja hann hvort hann kjósi að fresta ræðu sinni alveg og forseti fresti þar með umræðunni eða hvor hv. þm. treystir sér hugsanlega til að ljúka ræðu sinni á ekki miklu lengri tíma en þessum fimm mínútum. ( ÓÞÞ: Þetta er athyglisverð fyrirspurn úr forsetastól. Þar sem það liggur ljóst fyrir að ég kemst ekki yfir að flytja ræðuna á þeim tíma sem hér er boðið upp á þá hyggst ég fresta henni.) Forseti vill þakka hv. þm. fyrir það og er því umræðunni um þetta mál frestað þar til síðar á þessum fundi.