Forseti (Guðrún Helgadóttir)
:
Vegna þessara orða hv. 2. þm. Vestf. vill forseti taka fram að það er alsiða á hinu háa Alþingi að forseti semji við formenn þingflokka og náist um það samningar að umræða taki ákveðinn tíma hefur ekki verið tíðkað að bera slíkt undir þingheim.
Nú á ég ekki von á að hv. 2. þm. Vestf. sé beinlínis að mótmæla því fyrirkomulagi sem hér hefur verið samið um en hann hefur óskað eftir að ræða þingsköp öðru sinni og gefur forseti honum orðið.