Heimild til að selja jörðina Lönguhlíð í Vallahreppi

166. fundur
Fimmtudaginn 29. apríl 1993, kl. 13:45:09 (7645)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég er einn nefndarmanna sem skrifa undir nál. landbn. en ég vil vekja athygli á því að hér er auðvitað um einkavæðingu í landbúnaði að ræða og vil því taka fram að þó ég styðji það sem hér er á ferð þá felst ekki í því neinn stuðningur við einkavæðingarfrv. og áform ríkisstjórnarinnar að öðru leyti. Svo kann að fara að þetta verði eina einkavæðingarfrv. ríkisstjórnarinnar eða stuðningsmanna hennar sem nær fram að ganga á þessu þingi og vegur nú ekki þungt í því að ná þeim 1.500 millj. sem ríkisstjórnin ætlaði að ná með einkavæðingu á þessu ári.