Hjörleifur Guttormsson
:
Virðulegur forseti. Mér sýnist að það sé æskilegt svo að ekki sé meira sagt að félmn. taki þetta mál til athugunar, málið fari ekki til atkvæða nú heldur verði tekið upp af nefndinni og breytt þannig að það hljóti afgreiðslu sem samstaða er um því að menn greinir ekki á um efnisatriði önnur en þetta skilyrði í sambandi við að lögin taki gildi. Ég vil beina því til forseta að forseti greiði fyrir því að þetta geti gerst og trúi ekki öðru en formaður félmn. sé reiðubúinn til þess að líta á málið út frá því.