Gæsla þjóðminja

167. fundur
Föstudaginn 30. apríl 1993, kl. 15:30:57 (7745)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Eins og forseti hafði tilkynnt fer nú fram utandagskrárumræða samkvæmt fyrri mgr. 50. gr. þingskapa um gæslu þjóðminja. Málshefjandi og viðkomandi ráðherra hafa í fyrri umferð 5 mínútur hið mesta og tvær mínútur í þeirri síðari. Aðrir þingmenn og ráðherrar tvær mínútur í hvorri umferð.