Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegi forseti. Frv. það ásamt þeim brtt. sem hér liggja fyrir bera þess vott að öryggisfyrirvarinn sem settur var í samninginn er ákaflega ræfilslegur og endurspeglar að menn hafa gengið um of að kröfu Evrópubandalagsins sem neitaði öllum varanlegum undanþágum. Með þessu frv. er gengið um of á rétt launafólks til vinnu í eigin landi og vegið að stöðu verkalýðshreyfingarinnar með því að veikja verulega forgangsréttarákvæði stéttarfélaga í kjarasamningum og hugsanlega jafnvel í náinni framtíð að afnema það ákvæði sem yrði þá síðasta viðspyrna íslensks launafólks. Það hefur ekki komið neitt fram um viðbrögð ríkisstjórnarinnar við væntanlegri reglugerð EB um vinnu handan landamæra sem opnar fyrir undirboð varðandi laun og réttindi fyrir skammtímavinnuafl og það liggur fyrir að þessu frv. verður breytt. Boðaðar breytingar liggja fyrir af hálfu utanrrn. sem rýra þann rétt sem íslenskt launafólk hefur í 16. og 20. gr. fylgiskjalsins til vinnu í eigin landi umfram aðra en þær greinar verða teknar út í síðari meðförum. Ég mun því greiða atkvæði gegn 1. brtt. við þetta frv. og þeirri 4. en sitja hjá við 2. og 3.