Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Það frv. sem hér um ræðir er eingöngu flutt í þeim tilgangi að heimila ráðherra að setja reglugerðir á ýmsum sviðum samgöngumála í tengslum við samþykkt EES-samningsins. Það kemur ekki fram í frv., nema í mjög takmörkuðum mæli, í hverju þessar reglugerðir eru fólgnar og er því um miög verulegt valdaframsal til ráðherra frá löggjafanum að ræða. Ég tel því að þetta frv. sé með þeim hætti að það sé engan veginn hægt að samþykkja það óbreytt og legg til að því sé vísað til ríkisstjórnarinnar.