Húsnæðisstofnun ríkisins

169. fundur
Þriðjudaginn 04. maí 1993, kl. 14:48:17 (7812)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti verður að láta í ljós þá skoðun sína að þarna hafi alveg verið á mörkunum að þingmaðurinn hafi verið að bera af sér sakir. Ég tel að þingmenn verði að fara mjög varlega í því að biðja um orðið til að bera af sér sakir nema það sé góð og gild ástæða til. Ég held að þarna hafi þingmaðurinn a.m.k. verið alveg á mörkunum.