Húsnæðisstofnun ríkisins

169. fundur
Þriðjudaginn 04. maí 1993, kl. 14:56:32 (7815)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti sem hér situr í forsetastóli nú hefur einungis verið þar í 25 mín., en eins og hv. þm. veit þá er ekki heimilt að halda nefndafundi á þingfundatíma nema nefndamenn samþykki. Ég geri þá ráð fyrir því að svo hafi verið í þessu tilviki og með samþykki forseta. Það má vel vera að það leyfi hafi fengist hjá forseta sem var á undan mér, það skal ég ekki um segja. Því miður get ég ekki svarað því öðruvísi.