Húsnæðisstofnun ríkisins

169. fundur
Þriðjudaginn 04. maí 1993, kl. 15:51:36 (7827)

     Kristinn H. Gunnarsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Mér finnst þessi umræða vera farin að verða ansi einkennileg af hálfu hæstv. ráðherra. Menn hafa sett fram mál sitt og lagt nokkra vinnu í það að undirbúa og flytja í ræðum sínum fyrir í þessari 2. umr. og er það virkilega svo að hæstv. ráðherra ætli ekki að svara einu orði því sem fram hefur komið í máli manna?
    Það var upplýst fyrr á fundinum að hæstv. félmrh. væri á mælendaskrá og ég vek athygli á því að hv. 2. þm. Austurl. og hv. 4. þm. Norðurl. e. höfðu báðir þegar talað einu sinni í þessari umræðu áður en hv. 2. þm. Austurl. hóf mál sitt áðan. Mér hefði fundist eðlilegast að hæstv. ráðherra hefði svarað ræðumönnum áður en þeir tækju til máls öðru sinni.