Húsnæðisstofnun ríkisins

169. fundur
Þriðjudaginn 04. maí 1993, kl. 20:35:38 (7837)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill vekja athygli á því að það mál sem er síðast á dagskrá þessa fundar í dag hefur málanúmer 519 og þingskjalsnúmer 877. Það mál sem hv. 4. þm. Norðurl. v. vakti athygli á hefur málanúmer 520 og þingskjalsnúmer 878 og það hefur verið stefnan nú undanfarna daga eftir að hætt var að flokka málin eftir ráðherrum, sem eiga mál á dagskrá hverju sinni, að taka málin samkvæmt málanúmerum og fara eftir réttri röð þannig að væntanlega skýrist það með þessum orðum að á næsta fundi, þegar ný mál verða tekin á dagskrá, er þetta mál efst.