Húsnæðisstofnun ríkisins

170. fundur
Miðvikudaginn 05. maí 1993, kl. 14:11:31 (7878)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Frú forseti. Ég tel að það sé til mikilla bóta að fella niður það ákvæði sem verið hefur um skyldusparnað ungmenna. Á sínum tíma þegar þetta var sett inn var lofað gulli og grænum skógum þeim sem ættu fé á þessum reikningum en efndir hafa verið mun minni. Jafnframt varð húsnæðismálastjórn uppvís að því að reikna ekki rétt út þær verðbætur sem áttu að vera á þessum reikningum. Þess vegna styð ég þá grein sem hér er borin upp til atkvæða.