Kristinn H. Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Skyldusparnaður hefur svo sem löngum verið umdeildur. Það er mín reynsla af þessu kerfi að það hefur margt gott af sér leitt og er fremur til bóta en hið gagnstæða þó að ég að sjálfsögðu taki undir að rétt sé að gera breytingar á núverandi lagaákvæðum varðandi skyldusparnað og ég mun flytja brtt. um það efni við 3. umr. málsins.
Ég vil vekja athygli á því að skyldusparnaður hefur verið ákaflega vel tryggður í Húsnæðisstofnun og voru t.d. á síðasta ári greiddir vextir umfram verðtryggingu sem nemur 7% og verða á þessu ári um 6%. Ég mun því greiða atkvæði gegn þessu ákvæði.