Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir því að ég leggst ekki gegn því að þessi undantekning sé gerð frá meginreglunni er að ég tel ástæðu til að lýsa yfir sérstökum stuðningi við núverandi framkvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar ríkisins, einkum eftir ræðu hæstv. félmrh. í gærkvöldi, og ég mun því ekki greiða atkvæði.