Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Núverandi framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins er eftir því sem ég best veit vel menntaður maður með mikla starfsreynslu. Mér er því ekki ljóst hvers vegna menn eru svo hræddir um að aðrir hreppi það embætti ef hann mundi sækja um það í samkeppni á móti öðrum. Mér finnst að með samþykkt þessarar greinar séu menn að lýsa því yfir að slíkur undirmálsmaður sitji í þessu embætti að það sé ekki þorandi annað en að tryggja það sérstaklega í lögum að embættið skuli fylgja honum jafnlengi og hann lifir. Þar sem reglan hefur verið sú að menn hafa breytt húsnæðismálalöggjöfinni minnst á tveggja eða þriggja ára fresti til þessa sé ég ekki að þetta ákvæði muni nokkurn tímann koma til framkvæmda, þ.e. lögin eins og þau eru hugsuð, heldur að það verði aðeins ákvæði til bráðabirgða sem muni gilda og þykir mér það miður. Þess vegna segi ég nei.