Frágangur stjórnarfrumvarpa

171. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 10:55:32 (7947)

     Guðrún Helgadóttir :
    Virðulegi forseti. Það er vissulega gott mál að bæta texta sem lagðir eru fram hér á hinu háa Alþingi. En verði ráðinn málfarsráðunautur til þess væri ekki úr vegi að fenginn væri maður sem eitthvað kynni fyrir sér í framsagnarlist þannig að það skildist sem lesið væri upp úr frv. og þeim þingskjölum sem lögð eru fram hér á hinu háa Alþingi. Það þarf stundum meira en skarpa heyrn til að heyra hvað hv. þm. eru að segja að ég nú ekki minnist á framburðinn sem fundinn hefur verið upp hér og er nýjung í íslenskri málfarssögu, að menn eru hér hættir að leggja áherslu á fyrsta atkvæði orða. Menn eru hér í Alþýðubanda-laginu og í Framsóknar-flokknum. (Gripið fram í.) Mér var kennt það sem barni að það væri til flokkur sem héti Framsóknarflokkurinn en ekki Framsóknar-flokkurinn.