Íþróttir, æskulýðs- og tómstundastarfsemi

171. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 11:50:08 (7972)


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Ég tek undir þakkir til hv. 11. þm. Reykv. en ég vil aðeins vekja athygli á einu atriði í allri þessari umræðu um almenningsíþróttir og nauðsyn þess að börn og unglingar taki þátt í íþróttum þegar það færist nú æ meira í vöxt að það kostar mikla peninga. Nú er það svo hér í Reykjavík að litlir krakkar geta ekki fengið að vera í íþróttafélagi, knattspyrnufélagi eða handboltafélagi án þess að það kosti allt upp í 15 þús. kr. á ári fyrir hvert barn. Og það eru áreiðanlega til fjölskyldur í þessari borg sem hafa engin ráð á þessu. Ég held að það sé komið mál til að stjórnvöld marki þá stefnu hvort aðgangur að íþróttum sem þessum eigi að vera ókeypis eða ekki. Fyrir utan þessi gjöld sem foreldrar greiða eru börnin látin standa í sölu alls kyns vöru og grunur minn er sá að töluvert af þeim fjármunum fari til hinna fullorðnu sem eru þá orðnir eins konar atvinnumenn á launum. Ég held að það sé tími til kominn að við horfumst í augu við það hvort öll börn og unglingar eiga aðgang að íþróttum í þessu landi eða ekki.