Skrifleg svör við fyrirspurnum

171. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 11:59:40 (7977)


     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill taka fram að eins og fram kom í máli hv. þm., þá reka starfsmenn þingsins á eftir svörum þegar of langt er liðið frá því að fsp. var lögð fram, en að öðru leyti mun forseti taka til athugunar þær athugasemdir sem komu fram hjá þingmanninum.