Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti vill enn á ný svara því að það er að sjálfsögðu á valdi þingnefndanna hvernig mál eru afgreidd þar og það þekkja allir hv. þm. að það er engin regla að öll mál sem lögð eru fram og vísað til nefnda komi til baka úr nefndum. Þetta þekkjum við af reynslunni og þinghefðinni. En hins vegar eru það að sjálfsögðu nefndirnar sem hafa það á valdi sínu og væntanlega koma sér saman um hvernig mál eru afgreidd. Stundum er það í samkomulagi við viðkomandi þingmenn að mál eru ekki afgreidd úr nefndinni. Þetta segir forseti af eigin reynslu sem þingmaður í nefndum hér fyrr á árum.