Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Forseti hefur margsvarað því að það er á valdi nefnda hvernig þær afgreiða málin frá sér eða hvort þau eru afgreidd úr nefndum. Hins vegar ber forseta að hafa samráð við formenn nefnda til þess að geta gert áætlun um hvernig málin komi á dagskrá. Það hefur ekkert með það að gera hvaða skoðun forseti hefur á viðkomandi máli eða hver skoðun hans er á því hvort mál eigi að fá afgreiðslu eða ekki. Forseti á ekki sæti í nefndum, en ber að hafa samráð við nefndarmenn og fylgja því eftir að hægt sé að koma málum sem á að afgreiða á dagskrá eftir að þau hafa verið afgreidd úr nefndunum. Þetta vona ég nú að liggi nógu ljóst fyrir og bið menn að blanda ekki saman persónulegum skoðunum forseta á ýmsum málum og svo aftur því hvaða hlutverk forseti hefur varðandi eftirlit með nefndum.