Afgreiðsla mála í nefndum

172. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 14:15:58 (8014)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eftir því sem forseta var best kunnugt, þá hafði menntmn. talið sig vera búna að ljúka störfum að þessu sinni, en ef til þess kemur að það þurfi að kalla saman nefnd og formaður og varaformaður eru ekki tiltækir, þá hlýtur viðkomandi formaður þess þingflokks sem á formann nefndarinnar að leysa úr því.