Utandagskrárumræður

172. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 18:15:12 (8058)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Það hljóta að vera einhver takmörk fyrir þeim vopnaburði sem hægt er að hafa í seinustu ræðu þegar fjallað er um málefni sem í er skammtaður ræðutími í 30 mínútur. Það liggur fyrir að Alþfl. hefur öll völd í þessu landi varðandi það að vinna að fríiðnaðarsvæði á Suðurnesjum. Flm. á sínum tíma var hv. þm. Karl Steinar Guðnason, núv. formaður fjárln. Alþingis, og hann ætti að hafa vald á að veita þeim peningum til verkefnisins sem þarf. Hann á undir tvo aðra að sækja til að koma þessu í framkvæmd. Annar er hæstv. iðnrh., hinn er hæstv. utanrrh. Og í hvaða flokki skyldu þessir menn vera? Í Alþfl.

    Hér leyfir hæstv. utanrrh. sér að koma upp og segja: Það eru kommúnistarnir í landinu sem hafa stoppað málið. Og hvar? Er það í Keflavíkurgöngu á miðri leiðinni sem þeir hafa stöðvað fríiðnaðarsvæðið? Hvar hefur þetta verið stoppað?
    Herra forseti. Ég óska hér og nú eftir hálftíma umræðu, sem ég á rétt á sem þingmaður, um stöðu iðnaðarins á Íslandi.