Utandagskrárumræður

172. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 18:22:11 (8062)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti er ekki sáttur við það þegar beðið er um orðið um gæslu þingskapa að menn noti þann tíma til þess að ræða efnislega um ýmis hitamál. Forseti á erfitt með að ráða við þetta. Hv. þm. eiga að vita þetta, en það er nú einu sinni svo í hita umræðunnar að þá vilja málin stundum fara út um víðari völl heldur en ætlast er til. Og nú vill forseti taka undir með þingmönnum að það sé ástæða til að halda sig við gæslu þingskapa.