Almannatryggingar

173. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 18:47:01 (8079)


          Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þannig háttar til með þá dagskrá sem nú hefur verið útbýtt að leita þarf afbrigða um nokkuð mörg dagskrármálin. Í fyrsta lagi þarf að leita afbrigða um að 38. dagskrármálið megi koma á dagskrá þar sem það er of seint fram komið. Verður nú þeirra afbrigða leitað.