Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég veit ekki af hverju hv. 10. þm. Reykv. vill endilega finna sökudólg. Það sem ég var einfaldlega að segja, sem fer ekki fram hjá nokkrum manni, er að jafnréttisbaráttan hefur gjörbreytt
samfélaginu. Fram hjá því verður ekki horft. Auðvitað horfum við á afleiðingarnar af því hvort sem okkur líkar betur eða verr. En ég skal hins vegar taka undir það að sjálfsagt lagfærir þetta enginn nema við sjálfar. Ég treysti ekki karlmönnunum til þess. En svo hlýt ég að segja að lokum við hv. 10. þm. Reykv. að jafnréttisbaráttan í mínum flokki, Alþb., var ekki eins sjálfhverf og jafnréttisbaráttan hjá Kvennalistanum.