Lífeyrissjóður sjómanna

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 10:19:31 (8139)

     Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hluta efh.- og viðskn. um frv. til laga um Lífeyrissjóð sjómanna. Þetta er einfalt frv. sem felur það í sér að uppfylla ákvæði EES-samningsins hvað snertir Lífeyrissjóð sjómanna. Frv. var sent til umsagnar til ýmissa aðila sem getið er í nál. og meiri hluti efh.- og viðskn. mælir með samþykkt frv. óbreytts.