Fjármögnun samgöngumannvirkja

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 10:37:02 (8145)

     Frsm. samgn. (Pálmi Jónsson) :
    Virðulegi forseti. Samgn. hefur fjallað um till. þessa til þál. um fjármögnun á gerð vega og tengdra samgöngumannvirkja sem flutt er af hv. 3. þm. Reykn. og fleirum. Nefndin fékk umsagnir um tillöguna frá Vegagerð ríkisins, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Eyþingi, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Samtökum sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi og Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi.
    Nefndin leggur einróma til að tillagan verði samþykkt með breytingu sem gerð er tillaga um á þingskjali 1082, að við tillgr. bætist nýr stafliður, eins og þar greinir.