Tilkynning um utandagskrárumræðu

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 13:10:03 (8174)

    Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Forseti vill minna á að fyrirhugaðar eru utandagskrárumræður í dag, annars vegar um sjávarútvegsmál að beiðni stjórnarandstöðunnar og hins vegar um stöðu iðnaðarins að beiðni hv. 2. þm. Vestf. Utandagskrárumræðan um stöðu iðnaðarins fer fram skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapa en um sjávarútvegsmálin verða umræður samkvæmt síðari mgr. 50. gr.