Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Ræða hv. formanns þingflokks Sjálfstfl. hér áðan var yfirlýsing um það að forseti hefði ekki skilið það samkomulag sem gert var því að það heyrði ég mjög glöggt að eftir að hv. 1. þm. Norðurl. v. hafði gert grein fyrir því hvernig hann hefði skilið samkomulagið, þá stóð hæstv. forseti upp og sagði að sá skilningur væri réttur. Hér duga engin undirmál. Annaðhvort standa menn heiðarlega að hlutunum og lúta því að forseti stjórni þinginu með þeim skilningi sem forsetinn hefur haft á samkomulaginu eða þeir eru óbeint að reyna að standa þannig að verki að hægt sé að ýta út af borðinu í lokin einhverjum málum sem þeir vilja ekki fá atkvæðagreiðslu um og raða því þannig út af dagskránni.
Ég tel að hv. þm. Geir H. Haarde hefði betur látið ógert að flytja þá ræðu sem hann flutti hér rétt áðan um þingsköp.