Afgreiðsla frumvarps um framleiðslu og sölu á búvörum

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 13:45:45 (8188)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta finnst að málin séu farin að skýrast og að hv. þm. séu vel meðvitaðir um það að þegar svo mörg mál eru á dagskrá sem raun ber vitni þá ræðst það af tíma og ýmsu öðru, sem ætíð getur komið upp í samtölum milli manna, hvort sem það eru þingflokksformenn, þingflokkar eða annað, að eitthvað breytist á þeirri dagskrá sem fyrir liggur. Forseti biður hv. þm. að vera ekki að eyða tímanum að óþörfu og fara heldur að vinna í þeim málum sem eru á dagskrá.