Afgreiðsla frumvarps um framleiðslu og sölu á búvörum

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 13:48:59 (8190)

     Ragnar Arnalds :
    Virðulegi forseti. Hv. formaður þingflokks Sjálfstfl. hefur gert hér grein fyrir því af sinni hálfu að til greina komi að fella niður atkvæðagreiðslu og afgreiðslu þessa máls en ég sakna mjög að heyra hvað formaður þingflokks Alþfl. hefur til málanna að leggja. Hann situr með okkur í hv. landbn. og á aðild að afgreiðslu þessa máls úr nefndinni. Ég óska eindregið eftir því að hann upplýsi okkur um það hvort hann er ekki sama sinnis og við, að þetta mál hljóti að fá afgreiðslu á næstu klukkutímum.