Staða iðnaðarins

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 16:45:58 (8222)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég ætla að nota þann stutta tíma sem ég hef hér til að ræða um stöðu útflutningsiðnaðarins. Ég vil benda á þá dapurlegu staðreynd fyrir okkur Íslendinga að þrátt fyrir viðleitni í þá átt að auka hlutdeild útflutningsiðnaðar af okkar útflutningstekjum þá stöndum við í dag í sömu sporum og fyrir 20 árum síðan. Við stöndum í þeim sporum að enn er fiskurinn um 80% af okkar útflutningsverðmæti. Þetta gerir það að verkum að við eigum við núverandi aðstæður afar erfitt með að njóta efnahagsbata erlendis þar sem sú auðlind sem sér okkur fyrir 80% af útflutningnum er takmörkuð, þ.e. það sem við höfum til sjávarins. Þetta gerir það einnig að verkum að við höfum ekki sömu möguleika varðandi gengismál gagnvart gagni af gengisfellingu og þær þjóðir sem búa við og eiga sína afkomu að meira magni af útflutningsiðnaði. Ég get einnig tekið undir það sem hv. 9. þm. Reykv. nefndi hér áðan að stór hluti af því hvernig komið er fyrir ýmsum af okkar grunnatvinnuvegum nú er sú efnahags- og peningastefna sem framfylgt hefur verið á síðustu árum og hefur staðið í vegi fyrir því að fyrirtækin gætu byggt sig upp og gætu byggt upp sitt eigið fé í eðlilegt horf sem er alger forsenda þess að hægt sé að ráðast í frekari nýsköpun í iðnaði.