Staða iðnaðarins

175. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 16:48:19 (8223)

     Kristín Einarsdóttir :
    Frú forseti. Það var alveg stórmerkilegt að heyra ræðu hæstv. iðnrh. hérna áðan. Ég er eiginlega alveg viss um það að hann er einn af fáum mönnum í landinu sem er ánægður með stöðu iðnaðarins. Ég var eiginlega alveg gáttuð hvað hann var ánægður með þá stöðu sem kemur m.a. fram í blaði iðnaðarins frá því í apríl sem lesið var upp úr áðan. Þar kemur ,,samdráttur í veltu, starfsmönnum fækkar, almenn neikvæð þróun`` og þetta er bara því miður ekkert nýtt. Það kemur fram í skýrslum sem komið hafa frá sjálfum iðnrh. að þetta hefur verið stöðugt á niðurleið, staða iðnaðarins hefur ekkert batnað á undanförnum árum. Við höfðum búist við því þar sem Ísland er ekki iðnaðarland að það væri kannski möguleiki að iðnaðurinn ætti þá möguleika hér á landi þó iðnaður erlendis færi eitthvað niður á við, hér áttum við að hafa möguleika. En það er raunverulega ekkert skrýtið að hinn almenni iðnaður á Íslandi eigi svo erfitt uppdráttar þar sem ríkisstjórnin hugsar ekkert um neitt annað en stóriðju, stóriðju, stóriðju. Álver skal það vera. Ríkisstjórnin með iðnrh. í broddi fylkingar bæði í síðustu ríkisstjórn og þeirri sem nú situr datt ekki neitt annað í hug en einmitt þetta. Það eru ekki fáir blaðamannafundirnir sem við höfum þurft að horfa á í fjölmiðlunum þar sem iðnrh. hefur verið að reyna að koma á framfæri við þjóðina að nú sé álverið alveg að koma. Skrifað undir núna, nú kemur það bara eftir nokkra mánuði eða jafnvel nokkra daga. Það er einmitt þessi þráhyggja, eða e.t.v. ætti að kalla það nauðhyggju, sem hefur verið erfiðust fyrir iðnaðinn í landinu. Ég var að vona að iðnrh. gerði sér grein fyrir að þessi stefna gengur ekki. En því miður kom það ekki fram í hans ræðu að hann hefði nokkrar áhyggjur af iðnaðinum, þetta var bara allt í lagi. Hann var alveg stórkostlega ánægður með það sem gerst hafði. Eins og ég segi er ég alveg viss um að hann er einn um það að hafa þá skoðun. Síðan heldur hann því fram ásamt öðrum að EES muni nú bjarga þessu öllu, þegar við fáum EES þá verði hér blóm í haga. Hann ætti e.t.v. að lesa spá Þjóðhagsstofnunar þar sem koma fram m.a. efasemdir hennar um að fyrirtæki á Íslandi geti nýtt sér þá möguleika sem e.t.v. felast í EES-samningnum.